Skilmálar

Almennt

Kímúraverslun áskilur sér rétt til að hætta við viðskiptin hafi rangt verð eða röng mynd fylgt vörunni á vefsíðunni og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Ef valið er að sækja vöru, er hægt að koma á auglystum opnunartíma eða vera í sambandi og ákveða móttöku utan opnunartíma. Ef  valið er að fá pöntun senda heim eða á næsta pósthús, þá er varan send með Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu hennar. Kímúraverslun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi.

Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Kímúra til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.


Heimsending

Frí heimsending er fyrir pantanir yfir 15.000 kr. annars er sendingarkostnaður samkvæmt gjaldskrá Póstsins hverju sinni.

Verð

Öll verð eru í íslenskum krónum og eru birt með fyrirvara um prentvillur og myndarugl. Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Vöruskil 

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.  Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd nema um ranga eða gallaða vöru sé að ræða.  

Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef skila eða skipta á pöntun hjá Kímura.is  

Útsöluvörum/tilboðsvörum fæst skipt en ekki skilað. Vinsamlega hafið samband á netfangið kimuraverslun@gmail.com ef frekari spurningar vakna.

 

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.